26 febrúar 2006

Helgin frh...

Þá er langur dagur að kveldi kominn...

...vinnudagurinn fínn...gekk áfallalaust fyrir sig...þrátt fyrir að það sé rúmlega 1 ár síðan ég lokaði seinast...

...Djúpavogs"thingið" gekk líka áfallalaust fyrir sig...hitti nokkra sem maður hittir sjaldan, það er alltaf skemmtilegt...og ekki það svosum að þegar maður gerir engar væntingar, nú þá getur það ekki klúðrast.

...núna er bara næsta mál á dagsskrá að koma sér í bælið, enda dagurinn á morgun nokkuð þéttbókaður...

...Nefnilega á morgun þá koma Hreyfingarskvísurnar hingað til mín, á starfsmannafund...þetta var ákveðið svona til að slá nokkrar flugur í sama högginu.

...svo þarf maður náttúrulega að fara í "leyfar" hjá bakkafjölskyldunni...og ætli maður skvísi ekki inn þarna smá þrifum og matseld.

...já ég sé það að það er ekki seinna vænna að fara að dröslast í rúm

over and out
Inga

25 febrúar 2006

Ammili

Sigrún mín á 25 ára afmæli í dag...

Innilegar hamingjuóskir...og knús í tilefni dagsins...

Hafðu það nú rosalega gott og láttu kallinn dekra svoldið almennilega við þig :)

kv
Inga

24 febrúar 2006

Helgin enn og aftur

...er þetta bara ég...eða er síðan mín orðin "sjóndepruvæn"?? Þ.e. er letrið ekki óvenjustórt...eða sé ég bara svona vel?? Pæling...

Já...helgin verður semsagt ekki alveg eins og til stóð.

Planið var...

Föstudagur: Ungbarnasund og fjölskylduknúsingur.

Laugardagur: Fimm ára afmæli hjá Tinnu systur, prinsessan þar ekki lítið spent. Ætlaði meira að segja að aðstoða þar á bæ. Svo um kvöldið eitthvað Djúpavogs"gettogether".

Sunnudagur...rólegheit og jafnvel heimsókn til einnar sem átti prinsessukríli í desember.

En...planið riðlast þannig að ég er að vinna á morgun...frá 12 til rúmlega fimm...ekki gríðarleg hamingja með það...en svona er þetta, maður lætur sig hafa það. Get svosum alveg gert fullt af mínum verkefnum á meðan...

Hellubakkafamilína heldur því afmæli án Ingu "móðu" þetta skiptið. **snökt**

Þannig að framundan...hvítvínsglas...eða tvö...einn LOST þáttur...eða tveir...og svo knús við koddann minn...því bóndinn er að fara að vinna...

Þið sem eruð í borg gleðinnar á morgun...þið getið heimsótt mig í Faxafen 14 á milli 12 og 17 :o)

knúsingur
Inga :o)

p.s...kannski náði ég að laga þessa gríðarlegu leturstærð... :o)



19 febrúar 2006

Gleðilegan konudag ...

...allar saman :o)

Helgin búin að vera alveg yndisleg...

Tvær heimsóknir sömu helgina...það held ég nú að jaðri við met... :o)

Valdís okkar og strákarnir hennar kíktu við og horfðu á mjög vel heppnað Eurovision.

Já...eins og við var að búast vann Sylivía Nótt með yfirburðum. Jújú...held að hún eigi nú bara eftir að gera góða hluti, verð samt að segja...að svona ef hún hefði ekki verið...þá hefði Regína Ósk pottþétt átt að fara út...hún var massa flott gellan :o)

Annars vona ég nú bara að þið eigið öll notalegan dag í dag, ég ætla að njóta hans allavega, enda strembin vika framundan.

Knúsingur...

Inga :o)

18 febrúar 2006

Heimsókn yfir fjall :o)

Þá eru loksins komið eitthvað betra "look" á þetta blogg hér.

Óli og Hrafnhildur komu í heimsókn í gær...okkur til mikillar gleði og ánægju. Það var mikið blaðrað, og Óli svo hjálpaði mér að gera þessa síðu aðeins huggulegri.

Elsku krúttin okkar... þúsund þakkir fyrir komuna... Þetta var frábært framtak hjá ykkur að skella ykkur yfir heiði :o)

Við eigum eftir að lifa ansi lengi á þessari heimsókn. :o)

Takk fyrir okkur

Ingapinga

16 febrúar 2006

Vikulok

Þá er febrúar langt genginn...

Fjandans kuldabolinn mættur aftur...20 m/s uppá heiði í morgun... en er lætur maður það stoppa sig...neiii. Enda átti ég að mæta á Excel námskeið í morgun kl 8.30, tími 2 af 3. Er að upplifa alveg nýja veröld...sé fram á bjartari daga með smá kunnáttu í excel í farteskinu :)

DC námskeiðið líka byrjað, stór hópur og þetta verður án efa spennandi verkefni.

Annars voru þau Siggi okkar og Sunna spúsan hans að eignast lítinn prins, á sjálfan Valentínusardag, og óskum við þeim innilega til hamingju með þetta allt saman.

Valentínusardagurinn var annars frekar rólegur á þessum bæ...kallinn sótti mig í vinnuna, og við brugðum okkur á Ruby Tuesday (sökum ofurhversdagslegs...allt að flækingslegs klæðnaðs bóndans ;o)) maturinn þar hinsvegar var nú ekki til að hrópa mikið húrra fyrir...hálf bragðlaust, litlaust, og eina grænmetið sem prýddi matinn, voru fölir tómatar skornir í bita...og myglubragðið af þeim var allt annað en kærkomið... þarna stoppuðum við annars frekar stutt, þar sem ég svo eyddi kvöldinu í kennslusal í eigu FL group, vongóð um að klára kvöldið sem betri manneskja :o)

Á morgun er planið að hætta kannski klukkutíma...eða tveim fyrr í vinnunni...eiga smá quality time með manni og barni...allavega barni... og svo er það ungbarnasund...taka 2 kl 18.45.

Helgin lofar svo góðu... Bóndinn verður heima, þar sem hann slasaðist á hendi um seinustu helgi... þannig að ég allavega að sofa út :o) ...svo ef ég er heppin...þá slysast einhver í heimsókn...eeeellska það hreinlega að fá gesti :o)

...já og ef einhver hefur uppskriftina að því að setja linka hér inn...á síðuna...þá væri það vel þegið... mar er svoddan sauður...

knús
Ingapinga

11 febrúar 2006

kúringur

Það er ekkert yndislegra í þessum heimi en að hafa lítinn kropp steinsofandi í fanginu :o)

Svoleiðis var það í morgun...góð byrjun á helginni :o)

Inga :o)

05 febrúar 2006

ein stutt...

ákvað að skella einni stuttri færslu hingað inn..


Það er náttúrulega agalegt þetta tímaleysi sem maður þjáist af...

En nú sefur þessi litla unga dama...



...og kallinn úti í búð...

Það er svosum lítið merkilegt í fréttum...hitti konurnar mínar þær Kristjönu og Hörpu yfir Idoli á föstudagskvöldi... mikið kjaftað eins og von var á ;o) Takk fyrir gott kvöld ljúfurnar.
Planið er svo að fara að hitta fleiri vini...nokkrir sem hafa nokkurnveginn horfið eftir að maður flutti í sveitina...ekki gott...

En við tökum alltaf glöð á móti gestum og gangandi...
´
Ætla að skella inn bráðlega nýjum myndum á barnaland...það er bara svo tímafrekt það vesen...en það er von á þeim.

Well...heyrist nú í erfingjanum úti á svölum

Knús frá mér :o)

Inga :o)