30 mars 2006

Heima í dag

Þá er kominn fimmtudagur...

3 dagar frá heimkomu...

vika frá afmæli...

19 dagar í ársafmæli prinsessunnar...

Já þetta er fljótt að gerast Mouth At Side

Köben var glimrandi, við versluðum frá okkur allt vit, borðuðum góðan mat og höfðum það einstaklega gott Circle Of Hearts, þetta var löngutímabært að hafa það svoldið kósy bara við hjónin.

Dóttirin varð eftir heima hjá Tinnu, og það leit út fyrir að hún saknaði foreldranna bara ekki neitt, hún sofnaði hamingjusöm með foreldraleysið á fimmtudagskvöldið, og var alger engill allan tímann.

Og þó að það hafi verið gott að fá smá frí frá öllu, þá var það hápunktur ferðarinnar að fá hana aftur í fangið Kisses

Ég get nú ekki sagt að ég hafi nú samt heillast voða mikið af Kaupmannahöfn, en kannski var maður ekki að spá í því endilega, okkur fannst þjónustan hjá baununum ekki upp á marga fiska, hæg og afskiptalítil, svo fannst okkur umhverfið, allavega þetta allra nánasta sem við sáum, vera frekar skítugt. Það var mikið um framkvæmdir allstaðar, og því fylgdi mikið drasl og skítur, kannski eru þeir að keppast við að klára allar svona framkvæmdir fyrir helsta túristatímabilið...það gæti verið skýringin.

En ferðin var hinsvegar dásamleg, og þessi atriði algjör smáatriði, sem varla var þess virði að ræða, enda fór þetta ekkert í taugarnar á okkur.

Við fórum út að borða öll kvöldin, og stóð þar uppúr ferð á Ástralska veitingastaðinn Reef N' Beef. Þar var allt dásamlegt, þjónustan, maturinn og meira að segja vínið. Helst er frá því að segja að ég smakkaði krókódíl í fyrsta skipti, og Heimir fékk kengúru, og var þetta gríðarlega gott. Skemmtilegt að smakka svona nýtt alltaf. Núna hef ég prófað froska, strút, kengúru og krókódíl Munchy

Núna erum við mæðgur heima, daman er nefnilega með einhvern vírus í munninum, og finnur voðalega mikið til. Ætli ég verði ekki heima á morgun líka, svo hún nái nú að jafna sig í rólegheitum.

Annars átti ég semsagt fína afmælishelgi, fékk fullt fallegt, Harpan mín kom með pakka til mín í vinnuna, Kristjanan mín bauð mér út að borða og kom með blóm, Ásta mín kom til mín deginum á undan og við borðuðum saman, Ósk gaf mér 250dkr, Ég fór í klippingu, og svo kom Heimir með eyrnalokka og hring, ekki lítið falleg gjöf það. Svo þegar heim var komið fékk ég sparistell frá mömmu og pabba (sem ég var búin að biðja um). Svo núna í gær komu þær Obba og Bertan mín og færðu mér gjöf í tilefni þess að vika var liðin frá afmælinu mínu Goofy

Kisses Annars segi ég bara takk innilega fyrir mig elsku vinirnir mínir Kisses

Þangað til næst...

Inga og litli munnangri Drooling Bouncy Smileys



15 mars 2006

9 dagar í gleði og glaum og verslun :o)

Held nú að sé kominn tími á póst...

Við mæðgur erum heima í dag, litli kroppurinn að kafna úr kvefi og er með smá hita :o(

Það helsta í fréttum þessa dagana:

8 dagar í afmæli...ætla ekki að minnast á það aftur...og vona að það muni allir eftir því ;o)

9 dagar í Köben...og verslun ársins :o)

rétt rúmur mánuður í ársafmæli prinsessunnar :os

og Dale Carnegie rétt hálfnað.

Heimir Byrjaði að vinna fyrir 2 vikum, og er mjög sáttur með það, enda kominn tími á félagsskap fullorðinna :o)

Stubbalínan fílar sig í botn hjá Dagmömmunni, og meira að segja komin með kærasta... þau eru tvö þarna sem hafa tekið ástfóstri við hvort annað, sá litli heldur vernarhendi yfir skvísunni, sem þakkar fyrir sem með knúsi og kjassi :o) Ein fljót að eignast vini, verður ekki annað sagt :o)

Knús
Inga og Ragna Bjarney horgemlingur

04 mars 2006

Heil og sæl á skjá 1

Yesss... ég vissi að það væri sennilega eitthvað bogið við þetta...eins og ég hef núna undanfarið oft röflað út af þessum reglum þeirra...

Hvernig t.d. á maður að fara eftir reglu 1...sem er enginn sykur, hvorki hvítur né gervi... þarf maður ekki bara að vera heimavinnandi til að finna það út? t.d get ég svarið fyrir það að í Hreyfingu, þá sel ég ekki eina afurð, þar sem enginn sykur er í (jú nema kannski hrært bragðlaust skyr)

En þetta er smá viðurkenning:

http://www.ruv.is/main/view.jsp?branch=2574128&e342RecordID=124982&e342DataStoreID=2213589

Já...ég er ekki spennt fyrir svona öfgum...

Kv
Ingapinga