...eftir þessa helgi hefur aldrei verið eins hreint hér og snyrtilegt :)
Eyddi nefnilega öllum fimmtudeginum í skipulag og þrif... og eyddi svo aftur öllum sunnudeginum í meiri þrif...svona smámunaþrif...gluggar og svoleiðis...
Þið spurjið kannski af hverju... (eða kannski ekki) ...ástæðan fyrir þessu gríðarlega þrif-æði var sú að hingað kom kona á föstudag...til að skoða íbúðina... og svo fékk hún að koma aftur á sunnudag...með manninum sínum.
Þessi íbúð virðist verða svo auðveld í sölu....að við þurfum greinilega ekki að setja hana á sölu til að fólk sýni áhuga :) ... fasteignasalinn hringdi í Heimi og spurði hann hvort að hún mætti koma og skoða... and what's the harm in that... :)
Annars er bara alltaf sama gleðin...
Ég fór á VIP Hreyfingar... sem er hittingur hóps viðskiptavina Hreyfingar og örfárra útvalda starfsmanna...og nú greinilega fyrrverandi starfsmanna líka... Það var mjög gaman að hitta marga... aðra minna þó :) ... merkilegt samt hvað það er ekki gaman að vera innan um rúmlega 20 sauðdrukknar persónur.... en eins og ég segi þá var ómetanlegt að hitta þarna nokkra yndislega gullmola...
Heimir var að vinna alla helgina... karlgreyið...aldrei friður fyrir hann... Hann er frekar aumur ennþá eftir slysið... sterk verkjalyf og svefnlyf notuð til að hjálpa honum í gegnum daginn ...með litlum árangri þó.... en hann ber sig samt vel, og bítur á jaxlinn...enda víkingur með meiru.
Svo er að koma vetur... það leynir sér ekki... enda ekki nema von... nóvember handan við hornið... Ég hef alltaf hlakkað til að hafa dimmt snemma... ég elska að geta haft kertaljós og kósý snemma á kvöldin....tala svo ekki um núna þegar maður er svona heima... að hafa dimmt á morgnana...mmmm....lov it... en ég hef hinsvegar líka alltaf fagnað lengingu dagsins á móti... og hlakka alltaf til vors :) ...maður verður jú að hafa eitthvað til að vera spenntur yfir... reyndar aldrei vöntun á því á þessum bæ :)
Svo styttist í jól :) ... er strax byrjuð að viða að mér allskonar dóti sem hægt verður að nota í pakkaskraut...eða jólakort... og ég læt náttúrulega ekki fréttast annað en að ég föndri mín kort sjálf... nógur er víst tíminn núna :) Þeir sem vilja vera memm.... endilega bara... ekki það að auglýsingar á þessari síðu hafi einhverntímann borið árangur :/ ...en maður má alltaf reyna ;)
Planið framundan... heimsóknir og fleira... Reykjavíkurferð á miðvikudag... lunch með Hörpu og litla rassgatinu hennar... sem er náttúrulega bara sæt :)
Ungbarnasund á fimmtudag...tími 2... fyrsti tíminn var hrikalega skemmtilegur :)
Engin vinna hjá Heimi um helgina... vorum búin að ræða jafnvel jólagjafakaup... hver veit :)
Svo bara knúsingur...og ræktun sálar... maður fær aldrei nóg af því ...er það nokkuð :)
Bið að heilsa ykkur í bili...
Ingidór
31 október 2006
25 október 2006
18 október 2006
18 mánuðum seinna
Svona var þetta í Apríl 2005
....
Svona er þetta í ágúst 2006
....
Já...prinsessan mín er orðin 18 mánaða... sem er ekki lítill áfangi... þetta er bara eins og fyrir okkur fullorðnu að verða fullorðin...
maður kemst inn á leikskóla...
maður má drekka sjálfur...
....en stóri munurinn er ....
maður hefur alla í vasanum ennþá...
heldur að mamma og pabbi séu þau bestu í heimi...
er ennþá sætur þegar maður frekjast...
og það er vandamál ef maður er ekki nógu þungur ;)
Ohh hvað þetta er fljótt að líða...
Kv
Ingapinga unglingamamma
14 október 2006
Detti mér allar....
Þetta finnst mér meira en lítið athugavert...
...ég myndi frekar deyja... en láta börnin mín frá mér....
...en svona er forgangsröðunin hjá fólki misjöfn... við erum náttúrulega að tala um geðsjúklinga hér...
kveðja
Ofurmamma...allt of snemma á laugardegi ;)

13 október 2006
Föstudagurinn 13.
Vonandi eigið þið öll góðan dag í dag :)
Ég veit að ég ætla að vera róleg í dag.... maður tekur nú ekki óþarfa sénsa á þessum degi...
kv
Inga
Ég veit að ég ætla að vera róleg í dag.... maður tekur nú ekki óþarfa sénsa á þessum degi...
kv
Inga
Stórt er spurt...
ok...er með "langar að fara til útlanda" bakteríuna...
Spurt er:
Hvert er best að fara upp á ódýra verslun, skemmtun og huggulegheit??
Svör óskast :)
kv
Ings
Spurt er:
Hvert er best að fara upp á ódýra verslun, skemmtun og huggulegheit??
Svör óskast :)
kv
Ings
11 október 2006
hæ hó jibbí jei og jiibbííjei
Það eru JÓL hjá mér á morgun :)
Ef þið viljið hitta á mig... þá verð ég á milli jólapappírsins og jólaskrautsins ;)
knúsingur
Ikeakonan
Ef þið viljið hitta á mig... þá verð ég á milli jólapappírsins og jólaskrautsins ;)
knúsingur
Ikeakonan
10 október 2006
Gleði og gaman
Nú er að verða kominn mánuður síðan ég hætti að vinna... og elska ég þetta nýja líf mitt eða hvað... auðvitað sakna ég vina minna í vinnunni... en þau forréttindi að vera heima með barnið sitt... eru bara ómetanleg.
Ég er að upplifa lífið með barninu mínu á allt annan hátt en sem mjaltavél fyrstu fimm mánuðina hjá barninu. Þessi tími með prinsessunni er frábær... það er allt að gerast, orðaforðinn fer ört stækkandi, skapið breytist hjá henni, húmorinn þroskast og það besta er að hún er farin að gefa sér smá tíma til að knúsast...ekki leiðinlegt það :)
Hún fer reyndar á leikskóla í desember, en það er líka mjög gott, við verðum búnar að fá góðan tíma saman, og þá kemst hún í þá rútínu sem hún verður í næstu 4 árin.
Þessi tími nýtist líka í verkefni sem hafa lengi setið á hakanum, skipulagið í skápunum, bókhaldinu og margt annað. Ég hafði hugsað mér að setjast niður eitthvað kvöldið og föndra smá... ef einhverjir vilja vera memm... þá er það ekki ónýtt :)
Svo vil ég bara minna á enn og aftur að það eru eingöngu 45 mínútur hingað á selfoss... svona fyrir þá sem gætu hugsað sér að skella sér á rúntinn :)
Bið að heilsa í bili :)
knúsingur frá hamingjusömu húsmóðurinni handan heiðar :)
love u all :)

isspiss
Ég verð að segja að ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þennan ofur-hype-aða pizzastað Rizzo... Ógeðslegur staður að koma á...ekki einu sinni salerni... eiginlega mjög sjoppulegur á alla kanta... og pizzan... segi kannski ekki að hún hafi verið vond...en ekki var hún neitt sérstök... Þá kýs ég pizzurnar, staðsetninguna og huggulegheitin á Horninu hvenær sem er...
Ings
Ings
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)