21 apríl 2006

Páskapest

Jæja ...ekki er hægt að segja að plan páskanna, það að hafa það gott, slaka á og njóta fjölskyldunnar, fara kannski í eina eða tvær heimsóknir, og kannski einhverja dagtúra, hafi gengið eftir. Nei...páskunum á þessu heimili eyddum við í veikindi og vesældóm. Já, ég náði mér einhversstaðar í flensu...og er búin að liggja nær rænulaus síðan á fimmtudagskvöldið Sicky (skírdagskvöldi). Við erum að tala um allann pakkan. Ég hef til að mynda ekki fundið bragð, eða hvað þá lykt í viku, hitinn í kringum 40°c og ég gæti haldið áfram, en ég held að það hafi fæstir áhuga á nánari útlystingum. Messy Sneeze

Páskunum var semsagt frestað á þessum bæ, sennilega fram á sunnudaginn næsta. Þá er jafnvel planið að halda upp á eins árs afmæli aðalprinsessunnar, en hún átti ársafmæli á þriðjudaginn var .

Ég vil þakka fyrir ótrúlegar margar kveðjur sem við fengum í tilefni afmælisins. Greinilegt að við eigum marga góða að.

Annars er nú ekki mikið að gerast hér, er bara ennþá að jafna mig, fer nú samt í vinnu á mánudaginn. Árshátíð Hreyfingar var haldin á miðvikudag, og var víst gríðarlega vel heppnað. Ég fer bara næst....svona á meðan maður er heill, eða einsamall (eða eins og Kristjanan mín hafði einhverjar áhyggjur af) Shocked

Dale Carnegie námskeiðið að renna sitt lokaskeið...verð að segja að það verður gott að klára, þetta er orðið ágætt af löngum þriðjudögum. Á samt eftir að fara í eins og tvo tíma, sem ég geri núna áður en þetta klárast alveg. Bara tvær vikur eftir Bow Down

Svo er bara komið sumar...eða kannski meira samt bara vor ennþá, slyddan var allavega að herja á gluggann hjá mér, ekki mikið vor í lofti, en það er samt hlýtt. Sun

Ég bið hinsvegar að heilsa ykkur í bili...ætla að halda áfram að gera ekki neitt...

Knús
Inga-pestapúki Dramatic Death














15 apríl 2006

A princess is born

Baby
Elsku Harpa mín og Haukur

Innilegar hamingjuóskir með litlu dömuna.

Við hlökkum rosalega til að fá að sjá prinsessuna með eigin augum.

Knús og kossar frá okkur
Baby

Inga