31 maí 2006

27 maí 2006

Ertu búinn að kjósa??

Í dag kaus ég :)

Ég er engin stjórnmála-áhugamanneskja...en mér finnst kosningadagurinn sjálfur alltaf voða skemmtilegur. Það liggur alltaf einhver spenna í loftinu, maður skellir sér í sunnudagsfötin og fer á kjörstað svo er það spurning dagsins...."ertu búin að kjósa?" "kaustu rétt?"

Ég tel mig jú hafa kosið rétt...ég kaus xD og er mjög sátt við það val mitt...ég vonast til að þeir hristi aðeins upp í hlutum hér á bæ og geri það sem hinir gerðu ekki.... Hinsvegar er það annað mál að ég er svosum ekki rassgat inni í bæjarstjórnarpólitíkinni hér...og veit voða lítið hvað er í gangi...maður heyrir bara hitt og þetta...og myndar sér svo skoðun út frá því.

Nóg um pólitík... barnapían er nú væntanleg á hverri stundu...stefnan tekin á Rauða Húsið...bara við hjónin...svo familíu hittingur í Sóltúninu.

Hafið það gott í kvöld elskurnar mínar

knús
Ingapinga

15 maí 2006

Maraþon helgi

Ég lærði það þessa helgina að það er yndislegt að vakna snemma um helgar... :)

Þessi helgi var annars tekin með trompi, ekki ein klukkustund ónýtt :)

Föstudagskvöldið var tvíbókað...af því að maður er náttúrulega svo bissý allar aðrar helgar... en það var 30 ára afmæli hjá Gilsa gamla bróður mínum...og svo var smá grilldjamm hjá afgreiðslunni. Var stillt það kvöldið...enda langur dagur framundan.

Laugardagurinn byrjaði með fullu húsi af gestum... Tinna og Ingi kíktu í morgunkaffi, mamma og pabbi komu, og svo komu sjaldséðir, Allan og Hafdís :)

Eftir að gestirnir yfirgáfu slotið var haldið í Bláa lónið með Tinnu og Inga...reyna aðeins að nota þetta árskort sem ég á...og alla frímiðana sem ég á ;) Komst svo að því að BL er svaðalegt svona í góðu veðri, en það var algjör steik. Glampandi sól og logn. Við skelltum okkur svo á stælinn...enda allir glorhungraðir eftir sundið :)

Ég stakk krakkana svo af og fór í það sem var kallað "VIP fallega fólksins"...já beauty comes from the inside stendur víst einhversstaðar ;)

Þetta var semsagt grill...og áfengi... og fólkið á svæðinu var útvalið fólk úr Hreyfingu...fólk sem er alltaf í sömu tímunum...og svo vorum við fjórar starfsmenn...skemmtilegustu náttúrulega ;)

Drykkjan byrjaði kl 18 og endaði kl 01. Kvöldið endaði með lúlli heima hjá Kristjönunni minni...sem var ýfið skrautlegri en ég ;)

Sunnudagurinn er svo tekinn snemma...Heimir og múslan komu með morgunmat frá Jóa fel... svo var stefnan tekin á Laugardalinn...húsdýragarðinn og KFC með Valdísi, Gunna, Aroni og Alexander. Við fjölskyldan enduðum svo daginn í stuttri heimsókn í Smáralind.

Við sofnuðum svo kl 19.30...

Næstu helgar verða töluvert rólegri...og hvítvínsglösin ekki fleiri en 4 ;)

Knúsingur
Ingapinga

07 maí 2006

Speki dagsins :o)

Dagurinn í dag er dagurinn í dag...Njóttu hans

Gleðilegan Sunnudag :)

Inga