Ein ágætishelgin á enda...
...hún var reyndar nokkuð viðburðarlítil...svona þar sem litli kroppurinn var ekki upp á sitt besta...
...við fórum samt í eina útskriftarveislu...aldurstakmark 20...en við svindluðum og tókum prinsessuna með...þar sem það var nú einu sinni skáamman sem var að útskrifast út kennó...og við óskum henni að sjálfsögðu innilega til hamingju með þennan frábæra áfanga.
...Okkur var nú svo reyndar boðið í aðra veislu, en þar sem hún var seinna um kvöldið...og allar barnapíurnar úr bænum...þá komumst við ekki... En Heiða mín fær hamingjuóskir með sína útskrift :o)
...í dag svaf svo snúllan frá 10-14 og var svo sofnuð kl 18.30. Ekki hress...enda ekkert búin að borða...ældi í nótt...og svoleiðis.
...en Sigrún okkar kom loksins í heimsókn... því var grillað...henni til heiðurs.... Löngu tímabær heimsókn... og við þökkum kærlega fyrir okkur... elskum gestakomur :o)
Það stefnir í stuttan vinnudag á m0rgun... svona þar sem við þurfum bæði að vinna, þannig að ég verð fram að hádegi...kem heim og hleypi Heimi í vinnuna.... Ekki það að ég gráti það... kýs frekar að vera heima með sjúklingnum mínum.
Næstu helgi verður líka tekið með ró... Ólafsvík er off...og enginn söknuður í því.... Þannig að við verðum heima...og stefnir í að við fáum heimsókn frá einni "Desperate housewife" sem á fótboltaáhugamann fyrir "eigin"mann... Hlökkum mikið til :o)
og já...svo eru þrjár vikur í sumarfrí... skemmtilegt :o)
knús frá okkur
Ingidór
25 júní 2006
21 júní 2006
Lesiles
Mig vantar hugmyndir að skemmtilegu lesefni...
...ég uppgötvaði núna áðan að ég hef ekki lesið neitt sérstaklega áhugavert í ansi langan tíma...
...held bara að það sé kominn tími á smá heilafæði...
...en er alveg gjörsamlega hugmyndasnauð
Anyone...??
Ings

19 júní 2006
Slæpingur og leti
Einn mánudagurinn í viðbót...
...og það styttist í sumarfrí... þetta er það sem heldur í mér lífinu þessa dagana. Það verður bara dúllerí og slæpingur á okkur mæðgum...þar sem líka pabbinn verður lítið í fríi.
Það stefnir í að við tökum smá forskot á fríið...og skellum okkur á Ólafsvík fyrstu helgina í júlí. Þá skilst mér að séu færeyskir dagar...og Heimir á að dyravarðast á einhverju balli. Það fer allt eftir því hvort við fáum íbúð...eða hús...eða eitthvað með þaki... því ég ætla EKKI að vera í tjaldi... no way jose... Það verður nefnilega seint sagt um mig að ég sé útivistar/útilegukona...
Annars var seinasta helgi alveg ágæt... gerðum svo gott sem ekkert...nema bara slaka aðeins á... Við vorum með Brunch á laugardeginum... Ingi og Tinna komu í spæld egg, beikon og pylsur... og ristað brauð. Það var ansi ljúft...og líka hlutur sem maður gerir ALDREI... og maður skilur hvers vegna... Við ákváðum svo að kíkja öll saman á Menam að borða og svo þar sem prinsessan svaf til næstum 6 um kvöldið, þá ákváðum við að taka smá rúnt að Flúðum.... og kíkja á Ma&Pa og Laugu frænku þar sem þau voru búin að parkera húsbílunum...úti í sveit.... og gert var grín að hælaskónum mínum...sem stungust í mosann... það er sem ég segi...ég er ekki útilegukona :/
Sunnudagurinn var líka rólegur...bíllinn þrifinn...heimasætan og pabbinn tóku þriggja tíma blund og svo var bara lagt í pizzu í Hellubakkanum, allir slakir :o)
Framundan er bara slæpingur... og meiri slæpingur... sumarfrí... og fleira skemmtilegt :o)
knúsingur frá Selfossi...
...já og takk fyrir góð viðbrögð við seinustu færslu :o)... alltaf gaman að sjá hverjir eru að forvitnast :o)

15 júní 2006
hvernig er það...
... er EINHVER sem les þetta blogg mitt???
...allavega miðað við commentin...þá eru 2 sem lesa...
Það væri nú skemmtilegt að sjá smá viðbrögð...

13 júní 2006
10 júní 2006
Fallega fólkið
Helgin
Held bara að ég fái mér hund ;)
Fór út að labba í gær, eða frekar svona hlaupa í gær með familíunni, en Tinna og Ingi eru að passa tvo hunda...annan sem er bara hvolpur, 8 vikna... hinn er samsvarandi 80 ára. (skilst að það séu 10 í hunds). Já þetta var svona líka fín brennsla... er nú ekki mikið fyrir það að fara út að hlaupa... en þarna var actually einhver tilgangur með hlaupinu... Eeen...ætli ég láti það nú ekki eiga sig að vesenast í hundakaupum...svona allavega þar til ég er komin á jörðina...
Annars er lítið um að ske...allir að vinna þessa helgina... við mæðgur ætlum að reyna að ná ömmunni með í bæjarferð... kíkja kannski í einhverjar verslanir...hver veit... og svo kannski kíkja á Lönguna... ömmu sirrý þ.e. ...orðið ansi langt síðan við kíktum til hennar...
Svo er orðið ansi rólegt í vinnunni...afrekaði meira að segja að fara til Keflavíkur...og augljóslega til baka... og fara svo í ljós... allt á vinnutíma ;) Já svona er nú mikið að gera ;)
Mér svo sýnist allt stefna í að við familían verðum í Ólafsvík fyrstu helgina í júlí... Heimir er að fara að "varðast" eitthvað...er að sjá um gæslu á einhverju sveitaballi...og við vorum að spá í að gera fjölskylduferð úr þessu...og fara með... vígja útilegudótið...eða ekki... :)
Við ætlum svo að reyna að kíkja aðeins út í kvöld...með Tinnu og Inga... og jafnvel koma stubbnum bara í gistingu hjá ma & pa. Var að skoða matseðla á netinu í gær...og verð að segja að þessi leit langbest út...þannig að stefnan verður tekin þangað :)
Heimir er svo líka að vinna á morgun...við mæðgur verðum bara heima...ef einhver vill koma í heimsókn :)
Hlakka til að sjá viðbrögðin við því ;)
kv

02 júní 2006
:o)
Og helgi rétt enn einu sinni...
Fyrir þau ykkur sem kannski hafa spáð í því...þá hef ég jafnað mig... enda má maður alveg fara í fýlu...svona einu sinni ;)
Ég býð í mikilli óþreyju eftir sumarfríi....omg hvað það verður yndislegt...krakkar mínir ef þið svo hafið hugmynd um hvernig ég get eitt þessum rúma mánuði, eða viljið gera eitthvað skemmtilegt með mér...nú þá sláið bara á þráðinn :o)
Það helsta í fréttum er að ég er búin með Dale Carnegie námskeiðið... jeijeijei... ég er mun betri manneskja, eða allavega eitthvað smá ;)... kannski pínu rugluð í hausnum...en ég er allavega að vinna í því ;) Ég mæli með því fyrir hvern og einn að skella sér á svona námskeið, jú þetta er svoldið dýrt, en svo þess virði. Maður fær hvergi svona naflaskoðun...nema kannski bara hjá hausara... en maður gerir ekkert svoleiðis nema maður sé eitthvað klikk... ;)
Annars er allt með kyrrum kjörum... múslan búin að vera svoldið vond í maganum, en það er allt að koma til, og hún er bara yndislegasta barn í heiminum... og ákveðin svo um munar....oh my god...býð ekki í hana eftir ár...eða fimm...díses...
Ég er svo búin að vera ótrúlega dugleg að mæta í ræktina... geri aðrir betur eftir næstum 2 ára pásu... og mikið er það gott... löngu tímabært...og það mun aldrei...já aldrei líða svona langur tími á milli aftur...
Svo vil ég endilega koma því á framfæri...að ég er að vinna með bestu stelpum í heimi... og samstarfsfólkið mitt í Hreyfingu er upp til hópa dásamlegt :o)
Og svo vil ég líka segja að vinirnir mínir verða ekki mikið betri en þeir sem ég á... þegar á reynir, þá eru alltaf vissir aðilar til staðar...ég met það rosalega mikils og takk fyrir mig :o)
...nú er ég að hugsa um að fara inn í herbergi...og sofa...vakna svo fersk í fyrramálið með kallinum og kroppnum... hver veit nema maður taki bara Laugarveginn með familíunni...ef veður leyfir... áhugasamir bara bjalli í okkur á morgun :o)
Og svo eru nýjar myndir hjá múslunni
knúsingur og góða helgi
Ingapinga

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)