22 febrúar 2007

huffpuff...loksins föstudagur

Ég elska þá staðreynd að það er að koma helgi :)

Þetta hefur verið frekar strembin vika... uppsagnir vegna sparnaðar/hagræðingar í vinnunni...og hefur auðvitað mikil áhrif á móralinn... allir í uppnámi og óttast um sinn eiginn hag. Reyndar er nýja bæjarstjórabeljan nógu klár til að gera þetta þannig að þeir sem eru að klára 3 mánaða samningana sína fá ekki fastráðningu...þannig að hún er ekki að "reka" neinn...bara ekki láta þá fá meiri vinnu... einmitt!! Eina ástæðan fyrir því að ég er ennþá með vinnu er að ég er ekki búin með minn þriggja mánaða samning... spurning hvað gerist um mánaðarmótin mars/apríl...

En nóg um það...

Það stefnir í nokkuð busy helgi...

...Á laugardag var ég að spá í að kíkja í nýjasta frændann minn... Hann Mikael Mána


...Svo er nafnaveisla (er það ekki kallað það) en þá verður litla Nonnasyni (bróðursyni Heimis)gefið nafn


...Ég væri svo til í að hitta eina góða...sem ég hef ekki hitt síðan seinasta haust...skammarlegt alveg





...Á sunnudag stefnir svo í að við þurfum að þrífa allt hátt og lágt... þar sem við skellum litlu fínu skýjahöllinni okkar á sölu á mánudag :) ...með trega þó þar sem hér er best að búa...þyrftum bara eins og 30 fm í viðbót :)





Ég fékk fínu fötin mín í dag sem ég pantaði hér





Og svo vonandi á mánudag eftir viku fæ ég fötin okkar sem ég pantaði hér veiveivei





Svo er ég búin að uppfæra síðuna hjá prinsessunni





Þar má meðal annars sjá þessa ágætu mynd :)






Sæt er hún ;)

Knúsingur frá henni og mér

Ingapinga

18 febrúar 2007

óútleystur tékki í gleðibank...

HAHA... held að titill færslunnar hér á undan eigi kannski betur við hér...??

Jább... eins og ég sagði þegar ég sá að hann yrði með í keppninni... þá var það rauðhærði töffarinn sem kom sá og sigraði... enda gott lag þar á ferð... ef einhver kemur okkur upp úr forkeppni...þá er það Eiríkur Hauksson... enda sá tékki enn óútleystur ;)

Annars voru nú alveg nokkur lög í keppninni núna sem voru frambærileg... Matti og Heiða stóðu upp úr...á eftir Eiríki... þannig að við skemmtum okkur ágætlega... Regína flott að vanda enda ein hæfileikaríkasta söngkona landsins um þessar mundir :)


Dagurinn í dag var hrikalega næs :) ...við mæðgur lúlluðum til að verða hálf tíu... dúlluðum okkur svo fram yfir hádegi og skelltum okkur svo í göngutúr...enda vor í lofti :) ...tókum Tinnu og skoppu og skrítlu með, droppuðum við í Bónus og héldum svo aftur heim á leið :)

Morgundagurinn fer í að skoða eitt hús... og svo er barnaafmæli hjá honum Degi Inga seinnipartinn á morgun.... nóg að gera.

Krakkarófan mín sagði appesina í dag... og get ekki sagt annað en að ég sé að rifna úr stolti... enda ansi skýrt hjá henni :) ... svo segir hún alltaf lov jú við mann þegar maður er að fara eða segir það við hana af fyrra bragði... algjör mús :)

Heilsan er að batna... kvefið ansi leiðinlegt... en allt að koma... og öll önnur heilsa bara glimrandi :)

Já og Britney spears lítur út eins og fangi... ekki smart...

B.B.Í.B

Knúsingur og kossar
Ingapinga

16 febrúar 2007

tíminn líður hratt, á gervihna.....

Díses hvað dagarnir líða fljótt :) ...sem er eiginlega bara gott...þýðir að það er bjartara með hverjum deginum sem líður :) ...það munar nefnilega eiginlega öllu að það er farið að birta þegar við Ragna förum út á morgnana...og það er ennþá bjart þegar við erum búnar á leiksskólanum :)

Svo náttúrulega styttir það bið í margt annað í leiðinni ;)

Um seinustu helgi skelltum við hjónakornin okkur á árshátíð hjá Norvik...en það er Bykoveldið...Elko...Húsgagnahöllin...intersport...og eitthvað fleira :)

Veislan var haldin á Broadway...og get ég eiginlega ekki sagt annað en að hún hafi heppnast vel... Reyndar var maturinn ekkert spes... í forrétt var eiginlega hrá risahörpuskel...sem lyktaði ekkert voðalega vel...vægast sagt... þannig að ég borðaði það ekki... Svo var lambaeitthvað í aðalrétt...og allavega var minn biti ansi spekaður ;)... þannig að Heimir naut góðs af því... sósan þar var samt ágæt... og svo var súkkulaðikaka...heit og blaut í eftirrétt....og vanilluís... og þið ykkar sem þekkið mig sæmilega vitið að þetta tvennt er EKKI í uppáhaldi...þannig að enn og aftur naut bóndinn góðs af ;)...hann er svo vel giftur þessi elska ;)
Skemmtiatriðin voru hinsvegar mjög góð...Björgvin Frans eiginlega ógeðslega fyndinn...og svo var papaball eftir allt saman...og ekki hægt að segja annað en að þeir haldi uppi stuði drengirnir :)
Við Heimir drógum svo Tinnu og Inga á rúntinn í bæinn...svona bara upp á fönnið... og var það bara mjög skemmtilegt....notalegt að taka svona gamaldags rúnt einu sinni :) ...gistum svo á hótel íslandi um nóttina... en vorum svo vakin kl 8 um morguninn þar sem prinsessan ákvað að halda ömmu sinni og afa vakandi alla nóttina...og vantaði þeim smá svefn.

En annars gríðarlega vel heppnað kvöld... kynntumst betur skemmtilega fólkinu sem vinnur með Heimi...og mökunum og gátum verið kærustupar svona einusinni :)

Við Ragna erum svo að ná okkur af þessari kvefpest... búið að vera frekar leiðinlegt en allt á góðri leið :)

Ég er líka búin að vera dugleg að mæta í Rope Yoga... drulluerfitt...en ótrúlega gott... og mataræðið bara í nokkuð góðum farvegi :)

í kvöld fórum við konurnar á deildinni minni á leikskólanum á Kaffi Krús... fengum okkur að borða... hvítvín og bjór...og sódavatn og sátum svo bara og spjölluðum :) ...voða notaleg kvöldstund... enda nauðsynlegt að kynnast fólkinu sem maður er með 40 stundir á viku... :)

Helgin framundan er eiginlega svoldið óskrifað blað... eða allavega laugardagurinn... Heimir er að vinna til 4... Kannski að það verði eitthvað úr playdate-i þessa helgina...?? En sunnudagurinn er svo planaður fyrir afmæli hjá honum Degi Inga...sem átti afmæli í gær...á Valentínusardag :)

Valentínusardagurinn var ekkert voða rómó... Heimir gaf mér nú samt fallegar rósir....en ég er ekki búin að gefa honum neitt ennþá ;) Svo verður nú kannski eitthvað skemmtilegt á sunnudag :)

Well... man nú ekki eftir neinu fréttnæmu í viðbót...þannig að ég held að ég hunskist í rúm!

Knús og kossar
Ingapinga

06 febrúar 2007

Pest og annað skemmtilegt

Við mæðgur erum búnar að vera heima í tvo daga... stubbalína var orðin veik á aðfaranótt mánudags og hún var með 39 stiga hita í allan gærdag við litlar vinsældir...sem betur fer þá svaf hún mikið og kúrði mikið... en svo í dag þá er hún öll önnur...hitalaus... komin með fiðring...vill fara út og byrjuð að frekjast aftur :) ...mamman hinsvegar ekki alveg eins hress... stífluð út úr eyrum og allt sem því fylgir... :(

Við áttum voða góða helgi... playdate-ið féll niður vegna veikinda...þannig að núna finnum við bara annan dag :) ... sunnudagurinn var ljúfur... vorum komin í göngutúr fyrir 11 enda var veðurblíðan þvílík. Við fórum í göngutúr með Einari Breka sem er vinur hennar Rögnu Bjarneyjar og foreldrum hans. Enduðum göngutúrinn á kaffisopa heima hjá þeim og krúttlurnar léku sér í rólegheitum á meðan.

Við skelltum okkur svo í bæinn um 3-leytið... kíktum á útsölulok í NEXT og náðum að fjárfesta í hræódýrum bolum handa Rögnu....og buxum og pilsi handa mér... nokkuð vel sloppið :) ...kíktum á Ömmu gömlu og hittum svo Ástuna mína á Am.Style...kjúklingasalat klikkar ekki ;)

Svo 1 febrúar eignuðust Óli og Hrafnhildur hann litla Mikael Mána, sem er náttúrulega yndislega fallegur...sléttur og fínn og hraustur.
INNILEGA TIL HAMINGJU LITLA FJÖLSKYLDA :o)

Ég læt þetta duga í bili...

Knús og kossar
Ings