31 maí 2007

Ég er...

...að flytja...

...ætli næsta blogg verði þá ekki bara þegar það er allt VEL afstaðið...

...þið sem viljið... þið vitið símanúmerið mitt... ekki satt... og jú frá og með morgundeginum... og laugardeginum verður nýtt heimilisfang...

...

knús

Inga

p.s... takk takk takk fyrir góð viðbrögð við seinustu tveim færslum... gott að vita að fólki standi ekki alveg á sama :)

23 maí 2007

skoðun og aftur skoðun

Smá update...

Sónarinn gekk voða vel... allt í góðu með bumba, bara mikið vatn, og meira að segja er stubburinn, sem ég hélt að væri pottþétt stærri en Ragna, er ekki nema 9 merkur... þannig að ef hann stækkar jafnhratt og hún, þá verður þetta bara písl :)

Heimsóknin til læknisins skilaði af sér vottorði upp á 50% vinnu. Það er vegna þess að samdráttarverkirnir og aðrir verkir eru of miklir... og ég verð að taka því rólega. Þannig að frá og með deginum í dag vinn ég frá 12-16.15 ...ekki leiðinlegt það. Við Ragna vorum bara slakar í morgun, dúlluðumst á fætur um 8.30, borðuðum morgunmat í rólegheitum og svo fór hún á leikskólann um 10, hins ánægðasta :) Mamman fór svo bara heim, setti lappir upp í loft og skoðaði internetið í rólegheitum og svo heit sturta fyrir vinnu.... ekki slæm byrjun á degi það :)

Fór svo reyndar aftur upp á spítala í kvöld, bara svona til vonar og vara, en þá var komið eitthvað slím með smá blóði... en ljósmóðirin hélt að þetta væri ekkert sem ég þyrfti að hafa áhyggjur af, þarf bara að fylgjast með þessu og vera slök :)

Annars höfum við familían það voða fínt bara.... og takk þið ljúfurnar sem kommentuðu á seinustu færslu... gott að vita að það eru einhverjir þarna sem fylgjast með :)

Knús og kossar
Ingapinga

21 maí 2007

Palli var einn... ;)

Jæja... kannski bara að koma með eins og eina færslu... sem mér sýnist verða fyrir hana Hrafnhildi mína... sem virðist vera eina manneskjan sem einhvern áhuga hefur þessa dagana... takk fyrir það ljúfan mín... gott að vita að einhver hugsar til manns...

Jú stundum er maður svoldið einn í heiminum... ég á það líka sérstaklega til að verða þannig... maður ekki alveg sú öruggasta í heimi... en þannig er það.. veit svosum að ég á yndislega vini þarna úti... get samt alveg sagt núna að ég sakni þeirra :)

En ég er hinsvegar ekki þunglynd... ekki núna frekar en fyrri daginn... dett bara stundum í einhverja sjálfsvorkun og eymd og volæði... þar sem ég er alveg viss um að enginn vilji með mig hafa... :/ ...ekkert voða mikið vandamál... en ekki gaman á meðan á því stendur ;)

En nóg um það....

Á þessu heimili er nóg að gera... næst á dagskrá eru flutningar... sem koma til með að standa yfirum þar næstu helgi... 1. og 2. júní :) ...gleðin með það er gríðarleg... ásóknin í að hjálpa er hinsvegar ekki gríðarleg ;) ...en held samt að við verðum með nóg... Enda pizza og bjór í boði... og fyrir 18-25 ára selfyssinga eru það bara býsna góð laun...greinilega ;) fyrir utan félagsskapinn sem í boði er ;)

Á morgun er svo vaxtarsónar... honum var flýtt aðeins þar sem að kúlan mín sprengdi stærðarskalann á seinustu 3 vikum... og það þykir nú ekki alveg normalt... þannig að betra er að tékka á því sem fyrst :) Alltaf gaman að sjá barnið sitt í 2D :) ...og NEI... við ætlum ekki að kíkja eftir kyni barnsins... fyrst það vildi ekki sína... þá verður það bara þannig næstu 7-9 vikurnar :)

Ég er semsagt gengin 33 vikur á morgun :) ...allt gengur alveg glimrandi... en er farin að finna svoldið fyrir fyrirvaraverkjunum... sem koma ansi þétt. Vonandi þýðir það bara að barnið komi á tilsettum tíma... ekki 15 dögum seinna ;) ...maður getur alltaf vonað... en svo kannski þýðir þetta ekki neitt bara :) Ég var líka eiginlega að átta mig á því að eg hef eiginlega ekkert bloggað um flóðhestaástandið... en eiginlega er það aðallega vegna þess að það hefur eiginlega flogið í burtu frá mér... maður hefur um nóg að hugsa... Ragna náttúrulega tekur mikinn tíma... heilsan búin að vera rosalega góð... þannig að þetta líður bara skuggalega hratt :) Sem er náttúrulega bara dásamlegt :)

Við hjónakornin skelltum okkur út að borða á miðvikudag, fengum barnapíuna okkar dásamlegu hingað heim og brunuðu í bæinn og á Caruso, þar sem við fengum ábyggilega stærstu matarskammta sem ég hef nokkurntímann fengið... gott fyrir Heimi ;) ...en það sá ekki högg á vatni á mínum diski... og ég skilaði honum álíka fullum og hann kom... og að springa :) ...eina sem skemmdi annars yndislega stundi (eða gerði hana aðeins miður skemmtilegri) var að "nágrannnarnir" sem voru fjórar konur svona á milli 35 og 45, höfðu svo rosalega hátt... eða reyndar bara ein þeirra... en þegar hún "talaði" þá öskraði hún allt... "og hann bara uhhh... og hún bara dahhh..." svona var þetta meira og minna... fullorðin kona takk fyrir ;) En þetta fylgir nú víst bara því að fara út á meðal fólks... og við létum þetta ekkert pirra okkur, en við vorum hinsvegar ekkert að hanga þarna eftir að við borðuðum :) ...við skelltum okkur á Cafe París... í fyrsta skipti eftir breytingar, og verð að segja að breytingarnar eru hrikalega flottar... þeir setja þetta aðeins í tískuna, en halda hlýleikanum... Snilld... Fengum reyndar ekkert brilliant þjónustu, en létum vita daginn eftir og rekstrastjórinn var alveg miður sín yfir þessu og bauð okkur drykki í boði hússins næst, sem við reyndar afþökkuðum...enda var það ekki tilgangurinn :) ...Þannig að ég mæli eindregið með þessum 2 stöðum

Svo snjóar í dag... grá jörðin hér... frekar ömurlegt :/ en svona er ísland í dag ;)

Annars er bara allt í glimrandi standi... vorum bæði í fríi í dag... mæðraskoðun, bílaskoðun... bara mamman með endurskoðun... ekki bíllinn ;) Fórum svo skottúr í bæinn... Heimir þurfti að láta setja nýtt gler í gleraugun sín... og viti menn... hann fékk sjónina aftur :) ..mikil hamingja með það :)

Jæja... læt þetta þá duga í bili ...enda held ég að þetta sé ágætt :)
Knús
Inga (ein í heiminum ;)

13 maí 2007

betra en á horfðist

GLEÐILEGAN MÆÐRADAG :)


Þrátt fyrir spes kosningu í Eurovision þá er ég mjög sátt með tvö efstu lögin :)

Sagði það fyrir löngu að þetta væru tvö flottustu lögin (fyrir utan Eirík náttúrulega).

Svo er ég líka ánægð með atkvæðagreiðslu Íslendinga... sem gáfu Finnum 12 stig, en þeir voru með mjög flott lag... sem ég hefði viljað sjá ofar :)

Annars er ég líka ánægð með Alþingiskostningarnar ... ánægð með að samfylkingin náði ekki að fella stjórnina... og þó að margt þurfi að bæta... þá hef ég ekki trú á að Ingibjörg og félagar komi til með að laga það... (hef ekki jafnað mig á "er ekki að fara í pólitík" bullinu forðum í Ingibjörgu)

Ég kaus í Alþingiskosningunum... en ekki í Eurovision

Inga

12 maí 2007

Downtown

Ég fór í dag og nýtti mér minn kosningarétt... og strokaði í leiðinni Árna Johnsen út... kæri mig ekki um dæmda sakamenn til að stjórna landinu... nóg af þeim fyrir...

Annars fórum við bumbusystur í miðbæ Reykjavíkur í dag með prinsessurnar til að gleypa í okkur smá menningu sem í boði er með Listahátíð :) ...kvarta ekki sáum endurfundi Risessunnar og pabba hennar. Svakalega vel heppnað atriði... pabbinn frekar skerý... og Risessan mjög flott. ...tónlistaratriðið sem fylgdi var líka ansi magnað. Við hinsvegar kláruðum ekki að fylgjast með... enda ansi kalt í höfuðborginni.

Við notuðum tækifærið líka og gáfum öndunum.... brauðið rann ljúflega niður hjá brabra... og líka hjá Rögnu Bjarneyju, sem sennilega sporðrenndi einum þrem brauðsneiðum... algjör synd að henda þessu fína brauði ;)

Knús og kossar
Ingan

sprungið...

Já... mér sýnist sem svo að kommentakerfið mitt hafi sprungið í færslunni 2.maí... þar sem að það hefur greinilega enginn rætt um flutninga...

Ég veit að ef það hefði virkað þá væru þarna fleiri nöfn en Kristjana. (þó hún verði nú á við nokkra) ... ég bara á þannig vini ;)

knús
Bumbuinga

Austurevróvision

Eruð þið að fu**ing grínast með þetta Eurovision???

Ég hef nú alltaf verið mjög hrifin af þessu fyrirbæri... skemmtileg afsökun til að gera eitthvað skemmtilegt... og oftar en ekki er ágætis stemning sem fylgir :)

Núna hinsvegar eru hin undarlegustu lönd sem eru efst á lista... Ok...skil alveg að Serbía sé þarna efst...enda mjög frambærilegt lag...jafnvel skemmtilegt bara... en hin... *HNUSS*

Finnst vera skrýtin lykt af þessu ...segi ekki meir

Inga pinga

02 maí 2007

2. Maí

Í dag er annar maí...

...ég er gengin 30 vikur upp á dag...
...það er minna en mánuður þar til ég flyt

Við mæðgur erum annars búnar að vera heima síðan á hádegi á fimmtudaginn seinasta :/
Fyrst var það prinsessan sem var lasin... með hita.. svo tók mamman við með magapest... ógeð dauðans segi ég bara... Reyndar fór Ragna á leikskólann í dag...en ég ætla að gera tilraun til að fara í vinnu á morgun.

Við hjónin skelltum okkur í VIP hreyfingar-partý á laugardagskvöldið... fengum næturpössun fyrir barnið og drifum okkur í bæinn. VIP Hreyfingar er elíta nokkurra útvalinna viðskiptavina sem mynda vissan kjarna þarna niðri í Hreyfingu. Þetta eru allt saman viðskiptavinir sem hafa verið á sama pallinu á sama staðnum í sama tímanum (eða sama hjólinu) og eru farin að þekkjast ansi vel í gegnum það.

Einhverjum snillanum datt í hug að kalla liðið saman utan ræktarinnar og út kom þessi annars ágæti hópur :) ...þetta var í þriðja skipti sem skipulagt partý er haldið en stór hluti af hópnum fylgdi líka stelpunum sem kepptu í fitness um páskana.

Ég held að þetta þriðja partý hafi verið að mínu mati það besta... mórallinn einstaklega góður og allir fínir og fallegir og glaðir, en greinilega ekki sáttir við að hafa mig alltaf ólétta ,því nokkrum sinnum held ég, var Heimir vinsamlegast beðinn um að hætta að barna mig svo að ég gæti nú farið að skemmta mér almennilega með fólkinu ;)

Við byrjuðum að kveðja á miðnætti...(gleðin byrjaði rúmlega 18) en komumst ekki út fyrr en klukkutíma seinna :)

Laugardagsnóttin fór svo eins og svo oft eftir langt partý, í ælu og ógeð ;) En allt var þetta þess virði :)

En fyrir utan smá magaógeð þá eru allir í ansi góðu standi bara... styttist óðfluga í flutninga... kassarnir komnir í hús (þá er bara að byrja að nota þá).

Svo þá er bara að auglýsa eftir sjálfboðaliðum fyrir flutningana ;) ...ástandið ekki beisið á familíunni fyrir þungaflutninga...svona ekki allavega fyrir bara okkur 2 ;) ...nú þegar er Kristjanan mín búin að bjóða sig fram... reyndar eftir eitt eða tvö glös af rauðu ;)...en ég tók það gilt engu að síður... óheppin ljúfan ;) Einhverjir fleiri sem ætla að aumka sig yfir okkur? ... Stefnan líklega tekin á snemma dags laugardagsins 2. júní :) ...pizza og gleðivatn í boði :) ...ja eða bara eitthvað annað gott :)

Knús frá okkur
Ingapinga, Shrek og Ragna Bjarney :)

P.s.... þeir sem kommenta... plís notið nöfnin ykkar... forvitnin mín ræður ekki við svona anonymus dót