30 apríl 2007

Gullkorn dagsins ;)

Við mæðgur sitjum við morgunverðarborðið og Ragna Bjarney skoðar fagurlega skreyttan Rice Crispies pakkann eins og venjulega og veltir myndunum fyrir sér...

... framan á pakkanum er mynd af Shrek...og hún bendir með undrunarsvip og segir: Hvað er þetta??? ...ég svara þessari spurningu með sömu spurningu og hún svarar ansi ánægð með sjálfa sig... PABBI :)

Þetta fannst mömmunni fyndið :)

kv
Ings

24 apríl 2007

Afmæli og afmæli

Seinasta vika og helgi var yndisleg :)

Prinsessan átti tveggja ára afmæli á seinasta degi vetrar og byrjuðum við fagnaðinn þá um kvöldið með pizza-veislu... skelltum á nokkrar pizzur og buðum Tinnu og Fjölsk í mat :)

Sumardagurinn fyrsti var líka mjög notalegur... kellan sem keypti íbúðina af okkur kom í sýnitúr með sína fjölskyldu og því sjænuðum við aðeins þá um morguninn... skelltum okkur svo eftir það í eina stærstu bónusferð sem við hingað til höfum farið í... svo var það matarboð um kvöldið, en Tengdamamma, Jón Símon (bróðir Heimis) og konan hans komu til okkar í smá afmælismat.

Við hjónin vorum svo bæði í fríi á föstudeginum... enda nóg að gera. Við vöknuðum með prinsessunni í rólegheitum og komum henni svo á leikskólann. Við fórum svo í bæinn til að finna þríhjól til að gefa henni í afmælisgjöf... Fundum þetta líka flotta hjól... og keyptum líka rúm handa henni... alvöru rúm sem verður vígt þegar við flytjum í nýja húsið :) ...fróðlegt að sjá hvernig það verður...engir rimlar sem loka af lengur... ;) Við vorum svo að baka og dúllast til tvö um nóttina... sem var líka voða notalegt... gerðum m.a. þessa glæsilegu gríslaköku.

Á laugardeginu var svo haldið af alvöru upp á afmælið... góðmenn en fámenn veisla... nánustu ættingjar og vinir og skvísan á útopnu allan daginn. Fengum svo Kristjönu mína og Alla í mat um kvöldið.

Sunnudagurinn var tekinn í rólegheitum. Við fórum í göngutúr með Rögnu og mömmu, enda löngu kominn tími á að fá súrefni í lungun... Við lögðum litla kroppinn... og bumbukroppinn líka ;) ...enda taka svona fjögurra daga hátíðarhöld heilmikið á fyrir konu í fleirtölu :) Við fengum svo Einar Breka, besta vin hennar Rögnu og gamla settið hans í kaffi, og endapunkturinn var svo sleginn þegar pabbi kom í mat á sunnudagskvöldinu... heimsókn sem Ragna Bjarney var búin að bíða eftir alla helgina :)

Þreytt... en ánægð og hamingjusöm mættum við í vinnu og leikskóla á mánudeginum.

Svona vil ég hafa afmæli :)... gera svolítið mikið úr því... maður á jú bara afmæli einusinni á ári... og því ekki að gera eitthvað almennilegt úr því...?? Enda tek ég því mjög nærri mér ef mitt eigið afmæli stendur ekki undir væntingum (sem yfirleitt eru reyndar ansi háar).

Annars er semsagt allt gott af frétta... bumban stækkar og stækkar en ég er ennþá mjög hress... og planið er að halda því áfram :)

Já... ég vil endilega þakka ykkur sem voru svo elskuleg að muna eftir afmæli prinsessunnar... á réttum degi og allt... og það voru nú ansi margir... TAKK FYRIR ELSKURNAR MÍNAR... mitt auma hjarta tekur alltaf aukaslag þegar vinir mínir muna eftir mér og mínum :)

knús
Ingapinga

18 apríl 2007

2 ára snótin


Í dag er prinsessan mín 2 ára :) ...þetta er fljótt að líða... og núna eru 12 vikur eftir af meðgöngu og þar með max 14 vikur í að litla barnið mitt verði stóra systir:)..skuggalegt alveg :)


Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn...

Bumbufjölskyldan á selfossi

16 apríl 2007

Í dag....

...Eignaðist ég fallegt endaraðhús, sem stendur við Gauksrima 23 ... það er með þremur svefnherbergjum, forstofu, þvottahúsi, holi, stofu, eldhúsi og búri/geymslu inn af eldhúsinu :) ...upphituð stétt fyrir framan húsið... fallegur garður og fallegur vel afgirtur pallur... með potti... sem by the way tekur aðeins 10 mín að fyllast...og er með ljósum :)

Ég kem til með að flytja þann 1. júní... og er öll hjálp meira en vel þegin :) ...ég þarf ekki að mála...ekki skipta um gólefni... eða almennt bara neitt.... jú reyndar ætlum við að mála ormaherbergin í viðeigandi litum... bleikt fyrir prinsessuna... og **** fyrir bumba litla :) en annað verður það ekki ... svo er planið bara að liggja í pottinum og verða brún fyrir burð :) Anyone who wants to join... gjörið svo vel segi ég bara...

Ég er svo í tilefni þessa að leyta mér að Lazy boy stól... á góðu verði... tími eiginlega ekki... svona þar sem ég eyddi öllum 3 milljónunum mínum í dag... að kaupa stól á 50 þús í húsgagnahöllinni... nú ekki nema það sé einhverjum sem þykir ofsavænt um mig og vilja gefa mér svoleiðis þá afþakka ég ekki ;) ...sniðugt fyrir hópa... þið finnið út úr því sjálf veit ég ;)

Ég er ansi kát með þetta allt saman... enda búið að taka vel á...

*Knús og kossar*
Frú Inga raðhúseigandi :)

09 apríl 2007

Silkibrúðkaup :)

Svo gleymdi ég...

Við hjónin áttum víst brúðkaupsafmæli á skírdag... 05.apríl... 4 ár takk fyrir... og áttum einnig 8 ára samvistarafmæli... við hinsvegar gerðum ekkert í tilefni dagsins... þar sem hann fór allur í eitthvað annað... bættum okkur það þó aðeins upp um helgina á AK :)

Þannig að við erum núna búin að vera gift helming þess tíma sem við erum búin að vera saman... og héðan í frá verðum við búin að vera í hjónabandi í meirihluta þess tíma sem við höfum verið saman... skemmtilegt...

Giftingardagsetningin mín er þessi flotta 05.04.03 ... og gáfnaljósin við föttuðum það ekki fyrr en núna nýlega... flott :)

KV
Frú Inga

Gleðilega páska tous les mondes

Vinna á morgun... get ekki sagt að ég sé alveg reddý fyrir það... en það er nú víst ekki málið...

Þessi páskahelgi var voða skemmtileg...

Við familían skelltum okkur á Akureyri til að fylgjast með Kristjönunni minni keppa í fitnessinu á laugardag. Við lögðum af stað eftir ferminguna hjá Tinnu systir á fimmtudagskvöldið... og lentum á Akureyri rétt eftir miðnætti. Kristjana var rosalega flott á sviðinu og er ég svo stolt af þessum flotta árangri hjá henni... hver fer upp á svið hálfnakinn fyrir framan...ja... slatta af fólki ;) ...Ragna Bjarney var alveg til fyrirmyndar... sat still á meðan við horfðum á vaxtarræktarmót á föstudagskvöldinu... var algjör engill a meðan við fórum út að borða með öllu liðinu á laugardagskvöldinu (til rúmlega ellefu nota bene) og bæði leiðina norður og svo aftur suður heyrðist ekki í henni. Þetta er samt rosa mikið ferðalag fyrir svona lítinn kropp... og get ég alveg viðurkennt að við erum hálfþreytt... bumban líka ;) ...en þetta var fyllilega þess virði að fylgjast með vinkonunni stíga þetta gríðarlega skref og sigra þar með erfiðasta andstæðinginn... sjálfa sig :) ...Svo náttúrulega óska ég Valdísi líka til hamingju með flottan árangur hjá henni :)

Dagurinn í dag var svo ekki alveg eins og hann var planaður... en við enduðum í smá ferðalagi austur í Skóga... skoðuðum eitthvað safn þar með ma og pa... og Tinnu og co... og fengum okkur svo smá í gogginn á Hvolsvelli. Gamla settið fengu svo Rögnu lánaða og fóru í heimsókn með hana til bróður hans pabba. Við notuðum tækifærið og fórum í Bónus og svo heim til að undirbúa smá matarboð fyrir vinafólk.

Helgin var semsagt voðalega skemmtileg... en allt gott tekur svo enda... og hversdagslífið tekur við strax á morgun... oooo... hefði svo verið til í allavega einn dag í viðbót :)

Knús og kossar...

Akureyrarfarinn

01 apríl 2007

Seinasta vika...

Seinasta helgi var ansi notaleg... vorum á Langholtsveginum... með börn og buru... Auðveldasta jobb sem ég hef lent í... börnin náttúrulega yndisleg að vanda...

Við héldum aðeins upp á afmælið mitt á föstudeginum... fórum á Hornið og gæddum okkur á pizzunni þar og svo fórum við með liðið á íscafe...sem er einhver búlla á Suðurlandsbraut... og allir fengu ís...

Annars varð afmælisdagurinn ekki alveg eins og við ætluðum þar sem við seldum og keyptum eiginlega þann dag... og allt sett á fullt í bankamálum... EKKI skemmtilegt... en svona er þetta bara :/ ...verð svo að segja að knúsin sem ég sótti ekki sjálf voru reyndar ekki mörg... en góð voru þau sem komu :)

Ég fékk Svarta fína puma skó frá bóndanum og fallegt pilgrim hálsmen frá prinsessunni...sem hún valdi sjálf :) ...mamma og pabbi gáfu mér pening... og svo í dag fékk ég Paris Hilton ilmkremið frá langholtsfamilíunni. Takk fyrir mig :)

Vikan er svo liðin...hratt eins og þær flestar... allt að smella í húsnæðismálum...vil ekki ræða meira um það fyrr en ég veit nákvæmlega meira :)

Þessi helgi var svo tiltölulega róleg... við eyddum föstudagsnóttinni í að þrífa ælu eftir prinsessuna... pabbinn vann á laugardeginum... skutluðum Tinnu systur í bæinn...buðum mömmu og pabba í mat og hlunkuðumst svo í sófann með ís og vínber eftir allt saman.

Dagurinn í dag var svo líka notalegur... skelltum okkur í bæjarferð...versluðum eina fermingargjöf, hittum Kristjönuna mína a.k.a. Mjónu og slæptumst aðeins í smáralindinni. Enduðum svo daginn í matarboði hjá Langholtsfamilíunni. Prinsessan fékk þvílíkt flottann alklæðnað... pils, bol, vesti og gallabuxur... sem hún var að fíla í botn...rosalega flott :) Takk takk enn og aftur fyrir okkur elsku fjölskylda :)

Svo styttist í páskafrí... bara þrír vinnudagar í vikunni...þvílík gleði og hamingja með það...
Við familían setjum stefnuna á Akureyri um páskana... gengur ekkert annað en að fylgja Kristjönu, sem ætlar að keppa í fitness í fyrsta skipti... og á eftir að verða (og náttúrulega er) rosalega flott... og því fær hún stuðningslið frá selfossi :)

Annað hef ég svosum ekkert merkilegt að ræða hér meir...

Bið ykkur bara vel að lifa...

Ingapinga bumbo