Enn og aftur mánudagur... og það er kominn febrúar...
Það er tvennt sem er alveg skothelt planað í þessum mánuði... núna 16. er skemmtun í nýju vinnunni hans Heimis... Íslenska gámafélaginu. Það er boðið í mat, ball, gistingu og morgunmat á Hótel Örk í Hveragerði... verður án efa gríðarlega kósý :)
Svo 29. á hlaupársdaginn ætlum við hjónakornin að smella okkur á Jesus Christ superstar, út að borða og einhver huggulegheit :) ...og með því að taka forskot á afmæli og brúðkaupsafmæli :) Svona í ljósi ástands á heimilinu síðasta mánuð... og svo núna með ælupest hjá unganum að þá er nokkuð ljóst að það verður kærkomið að fá smá útivistaleyfi :)
Ég verð nú að segja að ég er farin að hlakka til vors! Ég er orðin svo ógeðslega leið á þessu viðbjóðslega veðri... skítt með kuldann... það er fja*#&!% ófærðin sem böggar mig... ég kemst ekkert út! Það er ekki verið að eyða tíma í að skafa af gangstéttum þannig að fólk þarf að ganga á götunni og ég er nú ekki að fara að gera það með barnavagn og prinsessuna hressu :/
Þetta hlýtur að fara að taka enda er það ekki ;)
Out
Inga
1 ummæli:
mínar dýpstu samúðarkveðjur í ælupestina!!! greyin mín!
en til hamingju með nýju vinnuna hans Heimis! spennó allt saman :)
og ójá! er totally sammála með veðrið! hvar er vorið???
knús yfir heiðina
***
Skrifa ummæli