15 febrúar 2008

þetta helst...

Á miðvikudag í næstu viku fer ég og hitti námsráðgjafann aftur. Þá förum við yfir áhugasviðsprófið sem ég tók á mánudag :) ...átti reyndar að hitta hana núna á fimmtudag...en það breyttist eitthvað hjá henni þannig að ég bíð bara spennt... :)

Haldiði ekki svo að unginn minn... litli prinsinn hennar mömmu sinnar, hafi ekki bara látið greinilega skoðun í ljós þegar mamman var að knúsast í litlu sætu frænku Gilsadóttur... Hann var vægast EKKI sáttur ...hehehe orðinn eitthvað mömmusjúkur litli kallinn :)

Annars er útstáelsi á morgun... 3.rétta máltíð...kokteilar...ball...kokteilar...gisting og morgunmatur...ohh hvað ég hlakka til.

Knúsíknús og góða helgi :)

Inga

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hann er réttilega að slá eignarétti sínum á aðal konuna í sínu lífi, samkvæmt karla siðum. hehe
Kveðja frá Bifröst

Nafnlaus sagði...

Góða skemmtun í kvöld