Skil ekki hvaðan bullið sem kemur til manns í svefni kemur frá...
Dreymdi í fyrrinótt að ég sat inni í bíl... með u.þ.b. 8-10 ára strák í fanginu... hann var með mjög dökkt hár og svoldið dökkur yfirlitum, en ég kallaði hann samt Þorgils. Hann hinsvegar brást ekki vel við því að ég kallaði hann því nafni... og sagði mér í einhverjum orðum að gera þetta vinsamlegast ekki.
Áður en ég veit af er allt komið í bál og brand úti við bílinn, og einhverjar óeyrðir brjótast út. Við erum náttúrulega ekki alveg í rónni og allt í einu sé ég einhvern koma að bílglugganum... brjóta sér leið inn um hann og stinga strákinn með sprautunál... því næst reynir hann að stinga mig...
...í því vakna ég
Mér finnst þetta eiginlega frekar óhuggulegur draumur og svoldið langsóttur, en ef það er einhver sem telur sig vita merkinu þessa draums... eða hvað hann boðar þá væri ég alveg til í að fá að vita það :)
kv
Inga Draumfari :)
2 ummæli:
sko ég er ekki góð í að ráða drauma ennn mér skilst ef bíllinn er á hreyfingu er að vænta breytinga í lífi manns, en mér skilst að bíllinn var ekki á hreyfingu. Takk fyrir góðar kveðjur
Takk fyrir tilraunina :) ...hefði verið gaman að sjá hver draumráðandinn væri ;)
Kv
Ingan
Skrifa ummæli