21 nóvember 2008

Smá fréttaskot :)


Jæja gott fólk :)


Kannski ráð að setja smá línu hér eins og Ólafrú og Mánamóðir biður svo fallega um í lennon færslunni minni :)


Það er hægt að segja að margt hafi gerst frá því í vor :)


Sumarið gekk vel fyrir sig með frábærum gestum og góðu veðri :)


Haustið var líka gott, fór í fyrsta skipti í ábyggilega 15 ár í berjamó :) ...gerði lifrapylsu í 1. skipti, og alls ekki það seinasta þar sem lifrapylsa er BESTI matur í heimi... og hollur :)


Ég settist loksins á skólabekk aftur, betra er seint en aldrei :) og ég næ varla á jörðina ég er svo ánægð með skólann minn. Þetta nám er allavega ennþá það skemmtilegasta sem ég hef verið í :)


Við hjónin fórum með Sigrúnu okkar og Snorra til Boston USA... sem er geðveikur staður... úff hvað við förum þangað aftur... svona þegar heimsástandið verður komið í skorður... þar náðum við að versla jólagjafir og fata familíuna upp :) Mæli með þessum stað!


Kreppan hefur sem betur fer ekki mikil áhrif á heimilið, nema bara til góðs. Á svona tímum lærir maður heldur betur að meta það sem maður á og njóta þess að vera til. Ég allavega hef virkilega tekið allt heimilishaldið í gegn, minni óþarfi sem er verslaður og hagsýnin fær loks að njóta sín :) ...hver hefði t.d. gert hakk úr þindum (sem by the way er fitulaust og gott kjöt-þ.e. það er bragðlítið og hentar rosalega vel með öðru kjöti t.d. í pottrétti og kjötbollur) fyrir ári síðan...ekki ég allavega ;)


Það er ekki hægt að segja annað en að það hafi verið nóg að gera, börnin springa út og dafna. Við höfum farið í íþróttaskólann með Rögnu í allt haust, og líka sundnámskeið. Stubburinn hefur fengið að smygla sér með í íþróttaskólann og það er yndislegt að sjá þau þarna, bæði svo glöð með að fá að ærslast svolítið.


Kúturinn er aðeins farinn að rembast við að tala, en er þó ekkert að flýta sér neitt :) og Ragna flaug í gegnum 3 og 1/2 árs skoðun, enda afburða barn þar á ferð :)


Heimir er út um hvippinn og hvappinn alltaf af og til, eiginkonunni til mikillar gleði... NOT en svona er þetta bara... hann þarf víst að koma með peninga í búið og þannig er það. Ég er að skúra alltaf aðra hverja viku á kvöldin í Lifandi hús og hentar það bara rosa vel með náminu :) Svo reyndar er ég nú að slysast svoldið í flott starf þar, semsagt sem aðstoðarmanneskja eigandans, sem er alveg brilliant stelpa með hausinn fullann af frábærum hugmyndum :) ...reyni svo bara að hjálpa henni að koma þeim út :)


Annars er bara allt gott, erum farin að hlakka til jólanna, stefnum í jólaljós um helgina eða í næstu viku :) svo bara próf framundan og eftir það bara sæææla, smákökubakstur, þrif og föndur :) yndislegt!


Ætla nú að láta þetta duga... lofa ekki miklu bloggi hér fram að miðjum desember... sjáum til hvernig umferðin verður hér ;)


Knús á ykkur!


Ingapinga hamingjusama ofurhúsmóðirin :)


p.s Langar að benda á frábært framtak hjá vinkonu minn sem er með svona hamingjublogg eiginlega :) gott að fá svoleiðis í öllu bölsýnisbullinu :)


3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mikið er gott að fá smá Ingublogg eftir LANGA bið! ;) Imagine var bara ekki að gera sig í svona langan tíma...þó gott sé;)

Gott að heyra annars að allt gangi vel, börnin dafni og skólinn gangi vel. Ég held að það sé svo ekki úr vegi að hittast for old times sake;)

Knús austur!
Kv. Harpa

Nafnlaus sagði...

ólafrú og mánamóðir er yfir sig sæl með update ;)
vissi að þú værir ofurkona Inga mín en nú slærðu ÖLL met! DUGLEGUST :)
gangi þér og ykkur rosa vel í öllu og það er aldrei að vita nema við sjáumst fljótlega, kannski þegar prófin þín eru búin...?
sendi knús á ykkur 4, stórfjölskylduna :)
***

Nafnlaus sagði...

Gaman að fá smá hreyfingu á þessa síðu og enn skemmtilegra að fá fréttir af fjölskyldunni. Bestu kveðjur í sveitina.