Það er kominn mánudagur... og Unginn minn er 6 mánaða gamall í dag... þetta líður meira en allt of hratt. Það eru rétt um 3 mánuðir þangað til að prinsessan verður þriggja ára... og allt er þetta eins og hafi gerst fyrir bara mánuði síðan :/
Við vorum í eins árs afmæli laugardag og fyrr um daginn lenti ég í flutningum með Hreyfingu. Það var ekkert smá gaman að hitta allt fólkið, þó 4 andlit hafi verið sérstaklega einstaklega gaman að hitta. Ég var spurð hvort ég væri að koma aftur...en neii...þó það væri gaman...þá á ég bara svo yndislega mola hérna heima sem ég vil ekki fyrir nokkurn mun fara að vinna svona langt í burtu frá.
Ragna Bjarney er veik og ég nýt þess að geta verið með hana heima þegar ég vil, enda finn ég mikinn mun á henni hvað mig varðar. Hún er meira að segja farin að leita oft fyrst til mín ef eitthvað kemur uppá... það gleður auma móðurhjartað :)
Annars er mest lítið í gangi... bara allt ágætt og því ætla ég að hætta að blogga svona um ekki neitt :)
Kv
inga
2 ummæli:
alltaf gaman að lesa um daginn og veginn hjá þér inga mín ;)
***
Þó skriftirnar séu um allt og ekkier þá er alltaf gaman að lesa. :-)
Skrifa ummæli