25 febrúar 2008

Til hamingju með daginn :)

Hún Sigrún mín á afmæli í dag... :)

Innilega til hamingju með daginn ljúfan mín... vona að hann verði góður :)

kv
Selfishes

24 febrúar 2008

Nostalgía :)

05.04.03
Hér geislar alveg hreint af okkur frænkum... (Gamlinn svoldið funky þarna á bakvið,hihihi)

20 febrúar 2008

stundum er best að segja sem minnst

Ég hefði betur sleppt því að hrósa heilsufarinu á heimilinu hér í seinustu færslu :/

Núna eru bæði börnin veik. Ég sótti Rögnu Bjarneyju veika á leikskólann, og er heim var komið var hitinn rúmlega 39°c og slappleikinn eftir því.

Í morgun var hún reyndar mun hressari... en þá tók kúturinn við. Hann er með hálsbólgu og hor, og ekki hjálpar það að augntönn í efrigóm er komin í gegn, þannig að hamingjan er ekki mikil.

Staðan í kvöld... RB 39°c hiti og særindi... ÞB áframhaldandi hor og hálsbólga.

ohwell...ekkert við þessu að gera...bara þolinmæðiþolinmæðiþolinmæði

kv
Florence Nightingale ;)

18 febrúar 2008

leiðrétting ;)

Takk fyrir kveðjurnar dömur mínar...en hinsvegar þarf ég að leiðrétta það að ég á ekki brúðkaupsafmæli fyrr en 5 apríl næstkomandi :) ...ég fékk þessa mynd hinsvegar senda frá "fósturmömmu" minni og þar sem þetta er eina digital myndin sem ég á úr brúðkaupinu mínu gat ég ekki sleppt því að deila fegurðinni með ykkur :) ...já ég var einu sinni svona sæt... vona samt að ég verði það einhverntíman aftur...þangað til hangi ég á innri fegurðinni ;) hehehe :)

Af okkur er allt gott :) ...Helgin var glimrandi, vinnuskemmtunin heppnaðist voða vel og vorum við hjónin voða fín. Það var líka voða gott að fá að sofa út...en það er samt alveg merkilegt hvað ég saknaði barnanna minna þegar við vorum komin upp á herbergi ;)

Við tókum svo sunnudaginn með trompi, vorum komin heim á hádegi og fórum svo í bæinn þar sem tvær afmælisveislur biðu :)

Nú svo framundan er loks fundur með námsráðgjafanum á miðvikudag. Þá förum við yfir áhugasviðsprófið og vonandi hjálpar hún mér að skrá mig í nám í haust :)

Nýja lífið gengur mjög vel, við erum búin að vera mjög dugleg í mataræðinu, og nú getur maður loksins farið að fara í göngutúra og þá vonandi fer lýsið að renna :)

Heilsan er lika loksins orðin góð...hjá öllum aðilum...og vonum að það dugi lengur en viku í þetta skiptið ;) 7-9-13...

Læt þetta duga í bili :)

Ings

15 febrúar 2008

þetta helst...

Á miðvikudag í næstu viku fer ég og hitti námsráðgjafann aftur. Þá förum við yfir áhugasviðsprófið sem ég tók á mánudag :) ...átti reyndar að hitta hana núna á fimmtudag...en það breyttist eitthvað hjá henni þannig að ég bíð bara spennt... :)

Haldiði ekki svo að unginn minn... litli prinsinn hennar mömmu sinnar, hafi ekki bara látið greinilega skoðun í ljós þegar mamman var að knúsast í litlu sætu frænku Gilsadóttur... Hann var vægast EKKI sáttur ...hehehe orðinn eitthvað mömmusjúkur litli kallinn :)

Annars er útstáelsi á morgun... 3.rétta máltíð...kokteilar...ball...kokteilar...gisting og morgunmatur...ohh hvað ég hlakka til.

Knúsíknús og góða helgi :)

Inga

10 febrúar 2008

Menntunarátakið...

Byrjar formlega á morgun... en þá fer ég á fund með námsráðgjafa hjá Fræðsluneti Suðurlands :)
Get sagt að ég sé að kafna úr spenningi :)

Annars gengur allt annað glimrandi :)

Kv
Ingapinga

07 febrúar 2008

Óþolandi pakk!

Hvaða mikilmennskubrjálæði, dómgreindarleysi og bjánaskapur er þetta í vitleysingunum sem virða ekki lokun á heiðinni???

Mér finnst það mjög mátulegt á þá að þeir sitji fastir í kömbunum og þurfi að láta bjarga sér þaðan... hinsvegar er það sorglegt hvað fer mikið af peningum í þessa aula... sem annars færu í fólk í alvöru nauð! :(

Ótrúlegt alveg hreint!!

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/02/07/margir_fastir_i_threngslum/

Kveðja
Sveitatúttan... sem fer ekki neitt!

04 febrúar 2008

4 Febrúar

Enn og aftur mánudagur... og það er kominn febrúar...

Það er tvennt sem er alveg skothelt planað í þessum mánuði... núna 16. er skemmtun í nýju vinnunni hans Heimis... Íslenska gámafélaginu. Það er boðið í mat, ball, gistingu og morgunmat á Hótel Örk í Hveragerði... verður án efa gríðarlega kósý :)

Svo 29. á hlaupársdaginn ætlum við hjónakornin að smella okkur á Jesus Christ superstar, út að borða og einhver huggulegheit :) ...og með því að taka forskot á afmæli og brúðkaupsafmæli :) Svona í ljósi ástands á heimilinu síðasta mánuð... og svo núna með ælupest hjá unganum að þá er nokkuð ljóst að það verður kærkomið að fá smá útivistaleyfi :)

Ég verð nú að segja að ég er farin að hlakka til vors! Ég er orðin svo ógeðslega leið á þessu viðbjóðslega veðri... skítt með kuldann... það er fja*#&!% ófærðin sem böggar mig... ég kemst ekkert út! Það er ekki verið að eyða tíma í að skafa af gangstéttum þannig að fólk þarf að ganga á götunni og ég er nú ekki að fara að gera það með barnavagn og prinsessuna hressu :/
Þetta hlýtur að fara að taka enda er það ekki ;)

Out
Inga