18 september 2007

heppin ég

Nýtt á

www.ragnabjarney.barnaland.is


Af ormunum mínum :)

Staðan enn góð... nóg að gera eins og vanalega og helgin var góð :)

Fer á fimmtudag til að hitta sálfræðinginn með Heimi, verður pottþétt áhugavert :)

Annars er allt gott að frétta, kúturinn er hættur að sofa í vöggunni og sefur nú í fína Bangsímon-skreytta rimlarúminu sínu, og líkar vel :) Ég og ÞB fórum til læknis í gær og komum út með sveppasýkingu... hann í munni, ég á brjóstum. Þessu fylgja ansi mikil óþægindi (fyrir mig) og sár...eða eiginlega göt... á brjóstunum... en óþægindin eiga ekki að vera nein fyrir hann. Fengum lyf sem fer vonandi að virka...

Börnin ráku mig ekki á fætur fyrr en um 8 í morgun, sem var kærkomið :)

Spjallaði við gamlan vin á Msn í gærkvöldi... það var notalegt og þegar hann hættir að vera á ferð og flugi ætlar hann að koma í heimsókn :)

Annars sé ég það betur og betur að ég er mjög lánsöm: ég á yndisleg heilbrigð og góð börn, góðan mann (þó hann sé svoldið tjónaður), þak yfir höfuðið, mjólk í ísskápnum (og brjóstum), góða fjölskyldu og vini :) Þetta allt dugar til að maður er öruggur og ánægður :)

Takk fyrir mig
Inga sveppur ;)

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

æ leiðinlegt að heyra með sýkinguna, en vonandi gengur hún yfir ljótt og örugglega svo að kútúrinn þurfi ekki að vera lengi frá mömmubrjósti ;)
annars er gott að heyra að þú sért sátt og glöð með það sem þú hefur :D þannig á það líka að vera.

Knús
H

Nafnlaus sagði...

gott að fá fréttir svona reglulega! hugsum mikið til ykkar :) leiðinlegt með sýkinguna, lagast vonandi fljótt...getur ekki verið þæginlegt :/! já, það er yndislegt að vera ánægður með sitt ;)
stórt knús frá okkur!!!
***

Nafnlaus sagði...

Knús til ykkar allra.. hlakka voða mikið til að sjá ykkur!! náum við kannski smá hitting á fimmtudag eftir tímann hjá doksa??? :)

Nafnlaus sagði...

Hellú,

Já mamma sagði mér frá litla prinsinum :-) Sagði að hann væri ekkert smá sætur...
Við getum þetta ég og Heimir ;-)
heheheheheheh

Bið að heilsa ykkur eskurnar heyri í ykkur fljótlega
kv Gunni Borg

Nafnlaus sagði...

Hellú Selfoss fjölskyldan mín
Mikið eru myndirnar á síðunni fínar, þetta eru svo sannalega falleg börn.