30 janúar 2008

Afmæli

Kristjanan mín á afmæli í dag :)
Til hamingju með daginn ljúfan mín !
Knús og kossar frá okkur
Inga og rest

18 janúar 2008

1. í nýju lífi??

Svo ég taki nú af allan vafa... þá er ég ekki ólétt...og reyndar er það ekki á planinu....

En til að útskýra aðeins hvað 1. í nýju lífi er þá þýðir það breytt stefna á heimilinu.

Og hvað er breytt stefna...???
  • Breytt mataræði
  • Líkami og sál sett í öndvegi
  • Svefnvenjur teknar í gegn
  • Fjölskyldan að vanda sett í fyrsta sæti
  • Heimilið skipulagt
  • Hjónasambandið sett í naflaskoðun :)
  • Menntunin tekin í gegn

Þetta er svona það fyrsta sem mér dettur í hug. Við gerðum ekki áramótaheit... við bara þurfum á þessu að halda...svona til að halda sönsum. Þessi vika...frá mánudegi hefur gengið mjög vel. Ég finn það strax að þetta hefur góð áhrif á orkuna hjá mér, mun meira af henni í boði :)

Nú er bara að duga eða drepast... allar uppskriftir þar sem grænmeti er uppistaðan eru vel þegnar ;) Þetta leggst allavega gríðarlega vel í mig og vonast ég til að með vorinu verði ég á góðri leið með að verða ný og betri manneskja :o)

Nýja árið leggst mjög vel í mig...margt skemmtilegt framundan, t.d. þetta :

  • Febrúar: Jesus christ superstar
  • Mars: Afmæli á páskadag ;) ...ekki alveg klárt hvað verður gert í tilefni dagsins
  • Apríl: Fimm ára brúðkaupsafmæli og afmæli prinsessunnar

Semsagt eitthvað til að hlakka til :)

Knús fyrir helgina frá mér :)

Ingapinga

14 janúar 2008

Vírus

Svona er elsku unginn þessa dagana :/


Rs vírusinn segir barnalæknirinn... allavega er þetta algjört ógeð... viðurstyggilegur hósti og æla í kjölfarið, vökvi og roði í eyrum, mikil hálsbólga og hæsi og hor í lítravís
Ss ekki mikið stuð. Hann tekur þessu samt með miklu jafnaðargeði og sefur sem betur fer mikið.
Annars er 1. í nýju lífi á heimilinu... skál fyrir því :)
kv Inga hjúkka :)


07 janúar 2008

af engu

Það er kominn mánudagur... og Unginn minn er 6 mánaða gamall í dag... þetta líður meira en allt of hratt. Það eru rétt um 3 mánuðir þangað til að prinsessan verður þriggja ára... og allt er þetta eins og hafi gerst fyrir bara mánuði síðan :/

Við vorum í eins árs afmæli laugardag og fyrr um daginn lenti ég í flutningum með Hreyfingu. Það var ekkert smá gaman að hitta allt fólkið, þó 4 andlit hafi verið sérstaklega einstaklega gaman að hitta. Ég var spurð hvort ég væri að koma aftur...en neii...þó það væri gaman...þá á ég bara svo yndislega mola hérna heima sem ég vil ekki fyrir nokkurn mun fara að vinna svona langt í burtu frá.

Ragna Bjarney er veik og ég nýt þess að geta verið með hana heima þegar ég vil, enda finn ég mikinn mun á henni hvað mig varðar. Hún er meira að segja farin að leita oft fyrst til mín ef eitthvað kemur uppá... það gleður auma móðurhjartað :)

Annars er mest lítið í gangi... bara allt ágætt og því ætla ég að hætta að blogga svona um ekki neitt :)

Kv
inga

03 janúar 2008

Loksins kom hún!

Í nótt eignaðist ég loksins litla frænku!!

Gilsi og Anna eignuðust semsagt prinsessuna sína í nótt um hálf þrjú. Allt gekk voða vel og nú bíð ég spennt eftir að fá að komast með puttana í hana.

Innilega til hamingju elsku fjölskylda með hvert annað :)

Inga "móða"

02 janúar 2008

Jólahald

Kannski ég fari aðeins yfir hátíðarhöld á þessu heimili

Jólasveinarnir komu í heimsókn með tilheyrandi hávaða og látum...og óðu inn á blautum stígvélum :/

Þetta voru fyrstu jólin okkar heima hjá okkur...


...og tókst allt einstaklega vel


Við komumst að því að jólatréð okkar er að verða of lítið... en fínt var það :) Ragna Bjarney sá um að tína pakkana undan trénu og vorum við ekki búin fyrr en um hálf ellefu að taka upp. Prinsessan var gríðarlega hamingjusöm með gjafirnar

En kúturinn, sem svaf af sér borðhaldið var hrifnastur af kassanum undan Vans skónum sem Gilsi frændi gaf .

Prinsessan komin í jólafötin á jóladag... við vorum með kósý jól á aðfangadag og því var kjóllinn vígður á jóladag.

Og við fengum líka jólasnjó :)


Fina húsið okkar í jólafötum :)


Jólin voru semsagt hin yndislegustu. Við fengum mikið af góðum gestum, og fórum líka í nokkrar heimsóknir. Svona eiga jólin að vera: Slök og í faðmi vina og fjölskyldu :)

By the way... þá ætluðum við að elda kengúru á aðfangadag, en ákváðum að hafa nautakjöt í staðinn, sem var ofsalega gott, en svo elduðum við kengúruna á milli jóla og nýárs og oh my ...namm hún var hrikalega góð :)

Við þökkum fyrir allar gjafirnar sem við fengum

Kveðja

Inga og co :)

2008

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

Ég ætla nú ekki að vera með neitt sérstakt uppgjör vegna seinasta árs, en það var að nær öllu leyti gott, þó náttúrulega hápunkti hafi verið náð 07.07.07 þegar fallegi unginn minn fæddist :) Annar stór punktur á árinu var flutningur í fína raðhúsið okkar og ég eignaðist systurson.

Við fögnum nýju ári og hlökkum til að takast á við allt sem það hefur upp á að bjóða :)

TAKK FYRIR ALLT Á SEINASTA ÁRI...ÉG ER HEPPIN KONA OG Á YNDISLEGUSTU VINI Í HEIMI... LOV U LOTS :)

Knúsingur frá mér :)

Ingapinga